SvR - Hausmynd

SvR

Jónas, hann klikkar ekki !

 Jónas og Guðmundur, háttsettir leyniþjónustu-agentar, eru sendir til Berlínar að myrða Hitler. Undirbúningurinn tekur marga mánuði, þeir setja saman skothelda áætlun, byggða á áreiðanlegum upplýsingum sem þeir hafa fengið um að Hitler fari alltaf á sama barinn á þriðjudögum klukkan 11:30.

Jónas og Guðmundur smygla sér inn í Þýskaland, fara huldu höfði í margar vikur og laumast að lokum til Berlínar. Á þriðjudegi eru þeir staddir við hornið á götunni, beint á móti barnum, tilbúnir að taka á móti og myrða Hitler, hvað sem það kostar.

Klukkan slær 11:30. Enginn Hitler.

Klukkan verður 11:35. Enn sést ekkert til foringjans.

Klukkan 11:45 snýr Jónas sér að Guðmundi og segir „Vá, maður, ég vona að ekkert hafi komið fyrir hann!"

 


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og sautján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband